Grillpartý í kvöld
Jæja, þá er komið að því. Maggi, sem er núna að fara að byrja á 1. ári, hefur ákveðið að hlaupa í skarðið fyrir Eggert og mun hýsa partýið í kvöld. Þvílík innkoma.
Allavega, húsið opnar kl. 19 og við munum byrja að grilla um það leyti. Ég hvet alla til þess að mæta tímanlega, með eitthvað gott á grillið og nóg að drekka. Heimilisfangið er Seiðakvisl 7 (110 RVK).
Ég vona að bara að sjá sem flesta í kvöld.
Helgi Davíð
Ps. Ef þig vantar meiri upplýsingar þá geturðu hringt í mig í síma 869 4151 og síminn hjá Magga, húsráðanda, er 694 5177.


10 Skoðanir:
Crazy Grill...
ég er alvarlega sáttur með þessa reddingu og ekki hægt að segja annað en að Magnús sé að koma sterkur inn....
Gaman fyrir mig að hitta alla svona á einu brettu og kveðja liðið áður en þeir skella sér út...
róbert mar
Takk fyrir gott partí og gott kvöld. Ánægjulegt að hitta allt fólkið.
takk fyrir mig, afar skemmtilegt kvöld. Maggi, þú ert hérmeð skipaður party-haldarinn, þú verður að fá þér stóra íbúð með sundlaug helst og öllum græjum. nýnemar, ekki hika við að nyta ykkur okkur ellismellina ef þið hafið spurningar
Takk
frábært teiti og allir skemmtu sér vel, drykkja hóflegl og allir í stuði...
r.mar
Gott partý í góðum félagsskap.. getur ekki klikkað :)
Takk fyrir mig
Sama hér - gaman að sjá ykkur öll. Tökum svo betur á þessu úti. :)
ok ok, er ekki hægt að sjá myndir úr þessu partýi einhvers staðar á fjölmörgum bloggsíðum?
kv
Björg
Takk fyrir frábært partý, rosa gott að hitta alla :D
Þetta var fínt partý. Gaman að hitta bæði gamla góða liðið úr Debrecen sem og nýju andlitin í hópnum.
Takk fyrir mig
Björg, ég man nú ekki eftir að hafa séð neinar myndavélar á lofti. Sjálfur gleymdi ég hleðslutækinu fyrir mína í Ungó
Ég tók nokkrar myndir og setti þær á netið. Hefði tekið fleiri myndir en var of upptekinn við að skemmta mér...
Post a Comment
<< Home