<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener("load", function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <iframe src="http://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID=4015198&amp;blogName=F%C3%A9lag+%C3%8Dslenskra+L%C3%A6knanema+%C3%AD+Ungverjal...&amp;publishMode=PUBLISH_MODE_BLOGSPOT&amp;navbarType=BLUE&amp;layoutType=CLASSIC&amp;searchRoot=http://debrecen.blogspot.com/search&amp;blogLocale=en_US&amp;homepageUrl=http://debrecen.blogspot.com/&amp;vt=-9128715264152272677" marginwidth="0" marginheight="0" scrolling="no" frameborder="0" height="30px" width="100%" id="navbar-iframe" allowtransparency="true" title="Blogger Navigation and Search"></iframe> <div></div>
 

Monday, September 25, 2006

Skírnin

Núna á laugardaginn fer fram Skírn norska nemendafélagsins. Þetta er árlegur viðburður þar sem fyrsta árs nemum er boðið að taka þátt í ratleik/drykkjuleik um Debrecen og leysa ýmsar þrautir. Upphaflega var þetta aðeins fyrir Norðmennina en nú á síðari árum hafa þeir boðið Íslendingum og Svíum að vera með.

Mæting er kl 15:00 á Klinika Mozi (kort) fyrir busana en partýið hefst svo kl 19:00 á Klinika fyrir okkur hin. Frekari upplýsingar veitir Jóney í síma 06 70 632 0421.

Ég hvet alla til þess að mæta, sjálfur skemmti ég mér konunglega á Skírninni á fyrsta ári.

Sjáumst,
Helgi Davíð

3 Skoðanir:

At 4:37 PM, Blogger robert mar said...

mér var einnig sagt að ég hafi skemmt mér rosalega vel, en man lítið eftir því. Aðal vandinn var að ég talið reiðbrennandi norsku allt kvöldið og var alla önnina að leiðrétta þennan misskilning við norsarana að ég kynni ekki norsku og væri íslenskur....

 
At 7:36 PM, Anonymous Helgi Davíð said...

Já, þetta var yndi. Þú varst í ekkert smá annarlegu ástandi, var það ekki þetta kvöld sem þú ákvaðst skreppa heim í bað? Ég var nú reyndar ekki mikið skárri.

 
At 4:18 PM, Blogger robert mar said...

jú, það getur vel passað. ætlaði að þvo af mér þessa ölvun, líkt og Ice Cube þurkaði af sér vímuna í myndinni Friday. En þetta endaði með ósköðum og rannkaði ég við mér í ísköldu baðinu...

þetta er það góð saga að gæti hugsað mér að blogga þessi brot sem ég man úr henni, þó svo að þetta sé ekki fyrir viðkvæma...

 

Post a Comment

<< Home

   

Vefstjóri