<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener("load", function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <iframe src="http://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID=4015198&amp;blogName=F%C3%A9lag+%C3%8Dslenskra+L%C3%A6knanema+%C3%AD+Ungverjal...&amp;publishMode=PUBLISH_MODE_BLOGSPOT&amp;navbarType=BLUE&amp;layoutType=CLASSIC&amp;searchRoot=http://debrecen.blogspot.com/search&amp;blogLocale=en_US&amp;homepageUrl=http://debrecen.blogspot.com/&amp;vt=-9128715264152272677" marginwidth="0" marginheight="0" scrolling="no" frameborder="0" height="30px" width="100%" id="navbar-iframe" allowtransparency="true" title="Blogger Navigation and Search"></iframe> <div></div>
 

Thursday, March 06, 2008

Atvinnuauglýsing

Ég var að fá tölvupóst frá Droplaugarstöðum og þau báðu mig um að koma þessari auglýsingu til skila. Ég hef sjálfur unnið á Droplaugarstöðum síðan 2006 og mér hefur líkað mjög vel.

Bestu kveðjur,
Helgi Davíð

---

Kæri læknanemi,

Droplaugarstaðir, hjúkrunarheimili Snorrabraut 58 er í hjarta borgarinnar . Fallegt og heimilislegt heimili þar sem allir íbúar búa í einbýli með sérbaði. Heimilið skiptist í 3 hæðir / deildir þar sem á hverri deild eru þrír heimilislegir íbúðarkjarnar þar sem saman búa 8 eða 10 manns.

Við erum að leita að metnaðarfullum og áhugasömum læknanemum til að starfa með okkur, með skóla , yfir sumarmánuði eða hvoru tveggja. Ýmsir möguleikar eru varðandi vinnutíma því hér er unnið eftir Time care vaktaskipulagskerfi. Droplaugarstaðir er góður vinnustaður til að öðlast reynslu í námi og starfi. Margir nemar sem hafa unnið hjá okkur hafa starfað hér í mörg ár.

Komið - skoðið og spjallið. Við tökum vel á móti ykkur .

Frekari upplýsingar veita:

Ingibjörg Þórisdóttir starfsmanna og gæðastjóri
ingibjorg.halla.thorisdottir@reykjavik.is
Sími 414-9503

Ingibjörg Bernhöft Forstöðumaður
Ingibjorg.bernhoft@reykjavik.is
Sími 414-9502

Ingibjörg Ólafsdóttir deildarstjóri 4. hæðar
Ingibjorg.olafsdottir@reykjavik.is
Sími 414-9561

Gyða Þorgeirsdóttir deildarstjóri 3. hæðar
Gyda.thorgeisdottir@reykjavik.is
Sími 414-9541

Ragnheiður Tómasdóttir deildarstjóri 2. hæðar
Ragnheidur.tomasdottir@reykjavik.is
Sími 414-9521

2 Skoðanir:

At 2:46 AM, Anonymous Anonymous said...

Þarf maður nokkuð að heita Ingibjörg til að fá vinnu þarna hehehe

 
At 11:55 PM, Anonymous Anonymous said...

Hrafnista vill líka endilega fá nema frá ungverjalandi til vinnu. Þeir eru á fjórum stöðum Rvk hfj vífilsstöðum og kjalanesi minnir mig. Maður getur fengið mjög góða reynslu.

SKilst þeir ætla bjóða námskeið ofl

 

Post a Comment

<< Home

   

Vefstjóri